Þú ert að skoða færslur í flokknum: ‘Myndatökur’

FLOKKUR: Afmæli, Myndatökur | STIKKORÐ:

Þessar myndir voru teknar í 90 ára afmælisveislunni hennar Arnbjargar (Öddu). Hér er hún ásamt fjölskyldu sinni, börnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og börnum og mökum þeirra.





9
ágúst
2011

Rúnarsbörn

FLOKKUR: Börn, Myndatökur | STIKKORÐ: , ,

Þessi hressu systkini, Bjartur, Ólafur og Áróra, voru í 90 ára afmælisveislu langömmu sinnar eins og frænka þeirra í færslunni á undan.






9
ágúst
2011

Bryndís Una

FLOKKUR: Börn, Myndatökur | STIKKORÐ: , ,

Við fjölskyldan fórum í 90 ára afmæli Öddu ömmu síðastliðinn sunnudag. Þar tók ég helling af myndum, m.a. myndir af afmælisbarninum ásamt börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Þær koma síðar og örugglega fleiri myndir frá veislunni. Ég mátti einnig til með að taka nokkrar myndir af börnunum. Veðrið var einstakt þennan dag og börnin leituðu útfyrir dyrnar og ég á eftir. Þessi gullfallega stúlka, barnabarnabarn afmælisbarnsis, var meðal veislugesta. Hún var dálítið feimin í fyrstu en það lagaðist undir lok veislunnar. Ég væri alveg til í að fá að eiga stund með henni í “alvöru myndatöku”.





5
ágúst
2011

Maríanna Una

FLOKKUR: Myndatökur | STIKKORÐ: , , ,

Ég og maðurinn minn fórum í sumarbústað í júlí í nokkra daga ásamt fleirum. Þar var m.a. þessi unga dama, hún Maríanna Una, sem er afskaplega hress og skemmtileg stelpa. Ég hef myndað Maríönnu nokkrum sinnum áður og fyrst þegar hún var aðeins þriggja daga gömul.








6
júlí
2011

Enn meiri Arnbjörg

Það væri nú gaman ef öll börnin mín væru eins dugleg að vera módel fyrir mömmu sína eins og þessi dama, en eftir því sem þau eldast eru þau meira til í að gera eitthvað annað en að fara með mömmu gömlu í göngutúra.





28
júní
2011

Meira af Arnbjörgu

FLOKKUR: Fjölskyldan, Myndatökur | STIKKORÐ:

Þessar myndir eru gott dæmi um hvernig karakter hún Arnbjörg mín er. Hún er fjörug og skemmtileg stelpa með mikinn og góðan húmor. Hún er líka langoftast í afskaplega góðu skapi.