2011
Gísli Friðgeir
Gísli Friðgeir, 3ja mánaða, kom í heimsókn með foreldrum sínum. Hann var nú ekkert allt of hrifinn af öllu þessu umstangi á okkur fullorðna fólkinu en lét sig hafa það í smá stund.





Gísli Friðgeir, 3ja mánaða, kom í heimsókn með foreldrum sínum. Hann var nú ekkert allt of hrifinn af öllu þessu umstangi á okkur fullorðna fólkinu en lét sig hafa það í smá stund.





Þessi hressu systkini komi í heimsókn til mín í morgun. Sá litli, tveggja vikna, vildi reindar alls ekki sofna en ég náði einni mynd af honum þar sem hann var að þykjast og lokaði augunum sínum í u.þ.b. eina sekúntu. Ég fæ vonandi bara að gera aðra tilraun til að mynda hann fljótlega aftur.







Þetta er framhald af síðustu færslu. Hér er litli kúturinn með pabba og mömmu, en svo eru líka nokkrar í viðbót af honum einum.







Þessi fallegi drengur kom í heimsókn til mín með pabba sínum og mömmu. Hann svaf eins og engill meðan á myndatökunni stóð enda herbergið heitt og notalegt. Við fullorðna fólkið urðum bara að þola hitann á meðan.
Þetta var afskaplega gaman og ég get ekki neitað því að ég væri sko alveg til í að eiga eitt svona kríli. ;) Takk fyrir Hekla mín og Bjössi að leifa mér að mynda litla drenginn ykkar og vonandi fæ ég að mynda hann og ykkur aftur fljótlega.
Ég vil taka það fram að þetta er aðeins lítið brot af myndunum sem ég tók og það eiga alveg örugglega eftir að koma nokkrar í viðbót hérna inn á bloggið.





Þessar myndir voru teknar í 90 ára afmælisveislunni hennar Arnbjargar (Öddu). Hér er hún ásamt fjölskyldu sinni, börnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og börnum og mökum þeirra.





Þessi hressu systkini, Bjartur, Ólafur og Áróra, voru í 90 ára afmælisveislu langömmu sinnar eins og frænka þeirra í færslunni á undan.






